Fjórir ungir leikmenn gera samning við Handknattleiksdeild Vals
Fjörir ungir leikmenn skrifuðu í dag undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals.
Þetta eru þeir Rökkvi Steinn Finnsson, Daníel Andri Valtýsson, Þorgils Jón Svölu Baldursson og Alexander Jón Másson. Valur bindur miklar vonir við þessa ungu og efnilegu leikmenn.
2.flokkur karla varð á síðasta ári Íslands- og Bikarmeistari í 2.flokki, allir eru þessir leikmenn uppaldir í Val. Daníel Andri er markvörður sem spilaði sína fyrstu leiki í Ragnarsmótinu með mfl karla, hann er fæddur 1996 og því á elsta ári í 2.flokki karla. Þorgils Jón, fæddur 1997, var mikilvægasti leikmaður 2.flokks karla í fyrra, leysir af flestar stöður á vellinum og var frábær í vörn liðsins sem tryggði sér tvo titla í fyrra. Rökkvi Steinn Finnsson, fæddur 1997, var mikið frá í fyrra vegna meiðsla en mikið efni, hröð og skemmtileg skytta, strákurinn er sonur "sleggjunnar" Finna Jó, sem vann ófáa titla með Val. Alexander Jón, fæddur 1998, er því enn í 3.flokki og var í 1998 landsliðinu sem endaði í 7.sæti í Króatíu nú í ágúst, Alexender er hávaxinn hornamaður og mikið efni.
Handknattleiksdeild Vals er stolt af því að semja við þessa ungu uppöldu leikmenn, til hamingju strákar.