Uppskeruhátíð 5. 4. og 3. fl. kk og kv
Uppskeruhátíð verður haldin fyrir iðkendur í 5. 4. og 3. flokk karla og kvenna fyrir tímabilið 2015-2016 föstudaginn 16. september klukkan 17:00.
5. flokkur - Börn fædd 2004-2005
4. flokkur - Börn fædd 2002-2003
3. flokkur - Börn fædd 2000-2001
Uppskeruhátíðin er haldin fyrir bæði iðkendur og foreldra sem eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Dagskrá:
17:00 Uppskeruhátíðin opnuð, iðkendur og foreldrar boðnir velkomnir
17:05 Farið yfir starf flokkanna yfir tímabilið
17:30 Veitingahlaðborð að hætti Valsmanna (umsjón í höndum foreldra - sjá nánar að neðan)
18:00 Allir hvattir til að fara á leik Íslands og Slóvena (Undankeppni kvenna - EM2017) sem hefst 18:45 á Laugardalsvelli
Veitingaskipulag - Upplýsingar
5. flokkur kk & kv koma með niðurskorið grænmeti / ávexti
4. flokkur kk & kv koma með brauðmeti
3. flokkur kv kemur með kökur/bakkelsi
3. flokkur karla er í veitingastjórn og kemur með drykki (djúsþykkni til að blanda í vatn).