Valur heimsækir Stjörnuna í Olís-deild karla í kvöld

Valur heimsækir Stjörnuna í 3. umferð Olís-deildar karla þegar liðin mætast klukkan 19:30 í kvöld.

Valsmenn hafa farið brösulega af stað og vonast því eftir að krækja í sín fyrstu stig gegn Garðbæingum sem eru með 3 stig eftir tvo leiki. 

Leikurinn hefst sem fyrr segir klukkan 19:30 og hvetur Valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna.