Olís deild karla Valur - Haukar fimmtudag kl.19:30

Valur fær Hauka í heimsókn næstkomandi fimmtudagskvöld þegar liðin mætast í 4. umferð Olís-deildar karla í handknattleik. 

Valsmenn máttu þola eins marks tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð þar sem úrslit leiksins réðust á lokamínútunum. 

Iðkendum Vals verður boðið upp á pylsur og andlitsmálningu frá klukkan 18:30 fyrir leikinn og hvetur Valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna í Valshöllina og hvetja strákana til sigurs.

Minnum á að hægt verður að kaupa dýrindis hamborgar og svellkalda svaladrykki á góðu verði.