Umferð í Pepsi-deild kvenna og karla um helgina

Knattspyrnulið Vals í karla- og kvennaflokki standa í stórræðum um helgina þar sem suðurlandið verður lagt undir fót.

Meistaraflokkur kvenna mætir Selfyssingum klukkan 16:00 á laugardaginn í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna. 

Karlalið félagsins mætir svo Eyjamönnum klukkan 14:00 á sunnudaginn í Vestmannaeyjum þegar liðin mætast í 21. umferð Pepsi-deildar karla.

Valur.is hvetur stuðningsmenn að skella sér á völlinn eigi þeir leið um Suðurlandið yfir helgina.