Ísabella og Vala í æfingahóp U-17

Hrafnhildur Skúladóttir og Stefán Arnarson þjálfarar U-17 ára landsliðs kvenna í handbolta hafa valið 28 stúlkur til æfinga 7. - 9. október. 

Í hópnum eru tvær Valsstúlkur þær Ísabella María Eiríksdóttir og Vala Magnúsdóttir. 

Hópurinn kemur saman í Digranesi næstkomandi föstudag þar sem fyrsta æfing er klukkan 19:15. Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.