Eygló, Miljana og Hlín á úrtaksæfingum

Eygló Þorsteinsdóttir, Miljana Ristic og Hlín Eiríksdóttir voru á dögunum valdar til að taka þátt á úrtaksæfingum U-17 kvenna í knattspyrnu vegna undirbúnings liðsins fyrir undankeppni EM sem fer fram í Írlandi dagana 24. okt -1. nóv 2016.

Æfingarnar fara fram í Kórnum um næstu helgi og óskar Valur.is þeim góðs gengis.