Óli Jó og Bjössi Hreiðars framlengja við Val

Ólafur og Sigurbjörn tóku við Val haustið 2014 eftir að Magnús Gylfason lét af störfum.  Undir þeirra stjórn urðu Valsarar bikarmeistarar bæði í ár og í fyrra. Valur endaði einnig í 5. sæti í Pepsi-deildinni bæði í ár og í fyrra.