"Ég er gegnheill Valsari", Bjarni Ólafur Eiríksson skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals

Bjarni Ólafur Eiríksson, trausti vinstri bakvörðurinn okkar og Íþróttamaður Vals 2015, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild félagsins. Eins og allir Valsarar vita þá er Bjarni algjör lykilleikmaður, varafyrirliði og afar mikilvægur í meistaraflokki félagsins og því eru þetta afar ánægjulegar fréttir.

Bjarni Ólafur hefur nú leikið 259 leiki fyrir Val í deild/bikar og skorað í þeim 16 mörk. Bjarni hefur spilað lykilhlutverk með mfl.karla síðustu ár og er liðinu afar mikilvægur.

Knattspyrnudeild er afar ánægð með að hafa náð samningum við Bjarna Ólaf.