Íþróttaveisla að Hlíðarenda alla helgina

Það verður sannkölluð íþróttaveisla að Hlíðarenda þessa helgina og nóg um að vera. Í kvöld föstudag tekur 1. deildar liðs Vals í körfuknattleik á móti Fjölni í sannkölluðum toppslag klukkan 19:30. 

Á morgun laugardag er Handboltatvenna í Olísdeildinni þar sem bæði kvenna- og karlalið félagsins eiga heimaleik. Stelpurnar ríða á vaðið klukkan 14:00 þegar Framstúlkur koma í heimsókn og í kjölfarið taka strákarnir á móti Akureyri. 

Veislan endar svo á leik í domino´s deild kvenna þar sem Valsstúlkur taka á móti stöllum sínum frá Grindavík klukkan 16:15 á sunnudag. 

Valur.is hvetur stuðningsmenn til að skella sér í Valshöllina um helgina enda nóg um að vera.