Jón Freyr Eyþórsson í úrtakshóp U19 í knattspyrnu
Markvörðurinn knái Jón Freyr Eyþórsson var á dögunum valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U19 landsliðs karla í knattspyrnu sem fara fram helgina 11.-13. nóvember.
Jón Freyr leikur með 2. flokki Vals auk þess sem hann fékk eldskírn sína í efstu deild í sumar þegar hann kom inn á gegn Víkingi í Ólafsvík.
Valur.is óskar Jóni Frey til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.