Valur tekur á móti Gróttu í kvöld - Valur U gegn KR í kjölfarið

Það verður sannkölluð handboltaveisla í Valsheimilinu í kvöld þar sem tveir hörku leikir eru á dagskrá.

Klukkan 19:00 mætir karlalið Vals í handbolta Gróttu í 14. umferð Olís-deildarinnar og í kjölfarið leikur ungliðalið félagsins gegn KR í 11. umferð 1. deildar karla.

Leikur Valur U og KR hefst klukkan 21:00 og hvetur valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna og hvetja strákana til sigurs.