U16 og U17 kvenna, úrtakshópur KSÍ

Úlfar Hinriksson hefur valið tvo úrtakshópa til æfinga helgina 9. - 11. desember. Annars vegar hópur U16 stúlkna (fæddar 2002) og hinsvegar hópur U17 stúlkna (fæddar 2000 og 2001). Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.

 

U16

Auður Sveinbjörnsdóttir, Anna Hedda Björnsdóttir Haaker og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir.

U17

Eygló Þorsteinsdóttir og Hlín Eiríksdóttir.