Jólabingó Barna- og unglingasviðs Vals
Jólabingó barna- og unglingasviðs Vals verður haldið með pomp og prakt næstkomandi sunnudag, þann 11. desember klukkan 11:00 í Valsheimilinu.
Bingóstjórinn að þessu sinni er enginn annar en Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu og mun hann lesa upp kúlurnar af sinni alkunnu snilld.
Iðkendur eru hvattir til að fjölmenna og foreldrar að sjálfsögðu velkomnir með. Allur ágóði rennur til barna- og unglingasviðs félagsins.