Jólatónleikar Valskórsins

Jólatónleikar Valskórsins verða haldnir í Friðrikskapellu sunnudaginn 11. desember kl. 16:00.

Dagskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt, íslensk og erlend jólalög auk frumsaminna jólalaga eftir stjórnanda kórsins. Í hléi verður hlutvelta með flottum vinningum.

Stjórnandi Valskórsins er Bára Grímsdóttir. Undirleikari er Sigurður Helgi Oddsson. Félagar í kórnum munu leika á hljóðfæri og syngja einsöng. 

Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir að koma og njóta jólatónlistar í hæsta gæðaflokki. Aðgangseyrir er aðeins 2000 og frítt fyrir 12 ára og yngri.