Valur mætir ÍBV kl. 18:00 í dag

Valur fær ÍBV í heimsókn þegar liðin mætast í 16. umferð Olís-deildar karla klukkan 18:00 í dag, fimmtudaginn 15. desember. 

Sæti í deildarbikarnum er í húfi og þurfa bæði lið nauðsynlega á sigri að halda. Það má því búast við hörku rimmu og hvetur valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna í Valshöllina. 

Meistaraflokkur kvenna sér til þess að það verði rauðglóandi og safaríkir handboltaborgarar á grillinu, þannig enginn þarf að fara svangur á leikinn. 

Mætum öll á völlinn og hvetjum strákana til sigurs!