Haustfundur félagsins vegna kosningar í deildarstjórn knattspyrnudeildar

Haustfundur félagsins vegna kosningar í deildarstjórn knattspyrnudeildar sem fara átti fram miðvikudaginn 11. janúar hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum til þriðjudagsins 17. janúar. 

Aðalstjórn Vals boðar því formlega til fundar þriðjudaginn 17. janúar nk. í veislusölum Vals að Hlíðarenda klukkan 17:00.

Dagskrá fundarins:

1. Formaður félagsins setur fundinn.
2. Kosinn fundarstjóri.
3. Kosinn fundarritari.
4. Kosinn formaður deildarstjórnar knattspyrnudeildar sem jafnframt tekur sæti í aðalstjórn.
5. Kosnir þrír til sex stjórnarmenn í deildarstjórn knattspyrnudeildar.
6. Önnur mál.