Valsstúlkur héldu tombólu að Hlíðarenda
Valsstúlkur í 8. flokki tóku sig til nú rétt fyrir jólin og héldu tombólu að Hlíðarenda. Stelpurnar stóðu sig frábærlega og vöktu mikla lukku meðal gesta og gangandi í Valsheimilinu og var söfnunarupphæðin að lokum heilar 9.138 krónur.
Þær langaði að styðja við mannúðarstarf Rauða krossins og skiluðu upphæðinni brosandi í hús Rauða krossins í Efstaleiti.
Þetta er ótrúlega fallegt framtak þakkar Rauði krossinn Valsstúlkum kærlega fyrir á heimasíðu sinni raudikrossinn.is