Hlín og Eygló á úrtaksæfingar hjá U17 í knattspyrnu
Valsstelpurnar Hlín Eiríksdóttir og Eygló Þorsteinsdóttir voru á dögunum valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum U17 ára landsliðsins í knattspyrnu sem fara fram dagana 3.-5. febrúar n.k.
Æfingarnar fara fram undir stjórn Jörundar Áka Sveinssonar en alls taka 26 stepur þátt á æfingunum sem eru föstudag, laugardag og sunnudag.
Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.