Miðasala á Final 4 í Maltbikarnum hafin

Byrjað er að selja miða á leik Vals og KR í undanúrslitum Maltbikarsins í Valsheimlinu að Hlíðarenda. 

Allur ágóði af miðasölunni í Valsheimilinu rennur til körfuknattleiksdeildar og því mikilvægt að stuðningsmenn næli sér í miða og styðji deildina um leið. 

Blásið verður til bikarhátíðar fyrir leikinn fyrir iðkendur Vals en það verður nánar auglýst í byrjun næstu viku.