Þrír Valsarar í hópnum hjá Heimi sem mætir Mexíkó

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari valdi á dögunum þá leikmenn sem skipa hópinn sem mætir Mexíkó næstkomandi miðvikudag. 

Leikurinn fer fram á Sam Boyd leikvangnum í Las Vegas miðvikudaginn 8. febrúar kl. 19.06 að staðartíma eða 3:06 að nóttu 9. febrúar að íslenskum tíma.

Í hópnum hans Heimis eru þrír Valsarar, þeir Orri Sigurður Ómarsson, Sigurður Egill Lárusson og Anton Ari Einarsson en þeir tveir síðarnefndu bættust við um helgina. 

Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á miðvikudaginn.