Styttist í að hægt verði að kaupa nýja Valsbúninginn í Macron Store

Verið er að leggja lokahönd á styrktarsamninga sem munu prýða alla keppnisbúninga Vals.

Af þeim sökum hafa orðið tafir á sölu nýja keppnisbúningsins en vonast er til að hægt verði að hefja sölu sem allra fyrst.

Tilkynning mun birtast á heimasíðu Vals.is auk þess sem hún verður send á alla foreldra og forráðamenn iðkenda í Val.