Eygló og Hlín með U17 til Austurríkis
Jörundur Áki Sveinsson þjálfari U17 ára landsliðs kvenna valdi á dögunum 18 manna hóp sem leikur tvo vináttuleiki við Austurríki 7. og 9. mars næstkomandi.
Í hópnum eru tvær stelpur úr Val Eygló Þorsteinsdóttir og Hlín Eiríksdóttir en æfingar fyrir ferðina fara fram helgina 3-5. mars.
Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í Austurríki.