Miðasala á leik Vals og FH í fullum gangi
Miðsala á leik Vals og FH í undanúrslitum Coca Cola bikarsins í handbolta sem fer fram í Laugardalshöll föstudaginn 24. febrúar er nú í fullum gangi.
Hægt er að tryggja sér miða á leikinn ásamt því að styrkja félagið með þrenns konar hætti.
Leið 1| Valsheimilið að Hlíðarenda
Miðasala er staðsett í sjoppunni í anddyri Valsheimilins. Ef sjoppan er lokuð er ekkert annað að gera en að finna húsvörð eða fá aðstoð frá skrifstofu.
Leið 2 | Leggja inn á reikning
Stuðningsmenn geta lagt inn á reikning félagsins og sent kvittun á dagny@valur.is. Hægt er að sækja miðana í Valsheimilinu eða nálgast þá við innganginn í Laugardalshöll.
Reikningsupplýsingar:
0513-26-7076
Kennitala: 670269-2569
Leið 3 | Kaupa miðana á netinu
Smelltu á neðagreinda linka til að kaupa miða á netinu, með því að styðjast við þessa hlekki fer ágóðinn af miðakaupunum til Vals
Smelltu hér til að kaupa fullorðinsmiða
Smelltu hér til að kaupa barnamiða
Með því að styðjast við eina af þessum þremur leiðum tryggir þú að ágóði miðakaupanna renni beint til Vals.
*Allur ágóði af miðum sem keyptir eru í Laugardalshöll á leikdegi rennur til HSÍ.