Bikarmeistarar Vals mæta FH í kvöld að Hlíðarenda

Nýkrýndir bikarmeistarar Vals í handbolta mæta FH-ingum að Hlíðarenda í 20. umferð Olís-deildar karla í kvöld klukkan 19:30. 

Þessi sömu lið mættust í undanúrslitum bikarsins s.l. föstudag í hörku leik og má því búast við að sama verði upp á teningnum þegar liðin mætast að Hlíðarenda í kvöld.