Hallgerður, Ísabella og Signý á úrtaksæfingar

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari valdi á dögunum 29 stelpur til úrtaksæfingar fyrir U16 sem fara fram 17.-19. mars n.k. 

Í hópnum eru þrjár Valsstúlkur, þær Hallgerður Kristjánsdóttir, Ísabella Anna Húbertsdóttir og Signý Ylfa Sigurðardóttir. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og velgengni á æfingunum.