Cristian Andres á úrtaksæfingar hja U18

Þorvaldur Örlygsson þjálfari U18 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi á dögunum úrtakshóp sem kemur til æfinga helgina 10.-12. mars næstkomandi. 

Í hópnum er Valsarinn Cristian Andres Catano sem leikur bæði með meistara- og öðrum flokki Vals. Valur.is óskar Cristian til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum um næstu helgi.