Þrjár Valsstúlkur í æfingahóp U-17 fyrir Evrópukeppnina

Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson völdu á dögunum 41 stúlku til æfinga í Reykjavík helgina 17.-19. mars með U-17 ára landsliði kvenna.

Liðið tekur þátt í Evrópukeppninni sem fer fram í Makedóníu í sumar og eru æfingarnar hluti af undirbúningi fyrir þá keppni.

Í hópnum eru þrjár stelpur úr Val, þær Auður Ester Gestsdóttir, Ísabella Maria Eiríksdóttir og Gunnur Hanna Sigurðardóttir.

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.