Valsstrákar á úrtaksæfingum U16
Dean Martin þjálfari íslenska U16 ára landsliðs drengja valdi á dögunum hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum dagana 24.-26. mars næstkomandi.
Í hópnum eru fimm Valsstrákar, þeir Benedikt Gunnar Óskarsson, Danny Tobar Valencia og Kristófer André Kjeld Cardoso. Auk þeirra eru Sigurður Dagsson og Tóbías Ingvarsson sem báðir hafa stundað æfingar með félaginu um langt skeið en eru búsettir í Þýskalandi í dag.
Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.