ÍBV - Valur (oddaleikur) laugardaginn kl. 16:00

Handknattleikslið Vals tryggði sér í gær oddaleik gegn ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar karla með glæsilegum fjögurra marka sigri í háspennuleik að Hlíðarenda. 

Oddaleikurinn fer fram í Vestmannaeyjum næstkomandi laugardag, þann 15. apríl. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og hvetur Valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna.