Domino´s deild kk: Valur - Þór Þorlákshöfn, fimmtudag kl. 19:15
Valur tekur á móti Þór frá Þorlákshöfn fimmtudagskvöldið 14. mars í síðasta leik liðsins fyrir sumarfrí í Domino´s deild karla.
Valur hefur tryggt áframhaldandi veru í deildinni og getur liðið með sigri jafnað Hauka að stigum sem eru með 16 stig fyrir lokaumferðina.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Origo-höllinni og hvetjum við stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs.