Valur - Snæfell í kvöld
Nú er komið að því að við Valsarar sýnum úr hverju við erum gerðir! Valur og Snæfell eigast við í kvöld í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Snæfell og ef þær sigra í kvöld slá þær út Valsstelpur. Við skulum ekki leyfa þeim að klára þetta einvígi á okkar heimavelli. Við hvetjum alla til að mæta, leikurinn hefst þann 21.mars klukkan.19:15