Valur - Haukar Olísdeild karla
Í kvöld er stórleikur á dagskrá í Olísdeild karla í handbolta. Topplið Hauka mæta í Vodafonehöllina og etja kappi við okkar menn. Þetta eru liðin í fyrsta og þriðjasæti og virkilega mikilvægt fyrir Valsmenn að sigra þennan leik og styrkja stöðu sína í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 og það er ekki spurning að allir Valsarar nær og fjær verða að mæta á völlinn og sína hversu öflugir stuðningsmenn þeir eru!