Rebekka Sverrisdóttir í Val

Rebekka getur leikið hvort sem er sem miðvörður,bakvörður og kantmaður gerði 2 ára samning við félagið  og er sannarlega styrkur fyrir komandi átök í pepsi deild kvenna.

Hún lék sinn fyrsta leik fyrir KR í Landsbankadeildinni 2008 og hefur síðan leikið 74 leiki fyrir KR og fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.

Til gamans má geta þess að hún lék sinn fyrsta leik við hlið Eddu okkar Garðars og tók einmitt við númerinu hennar hjá KR þegar Edda hélt á vit ævintýrana erlendis.

Rebekka er við nám í Bandaríkjunum og kemur til liðs við Val í byrjun maí við hlökkum til að sjá hana í rauðu treyjunni í sumar og næstu sumur.