Rowdies 1 - 1 Valur
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu lék æfingaleik við Tampa Bay Rowdies þann 31.mars á Florida þar sem drengirnir eru staddir í æfingaferð.
Leikmenn Tampa Bay Rowdies náðu forustu í leiknum með smá hjálp frá Dananum Mads Nielsen sem stýrði boltanum í eigið net eftir hornspyrnu Tampa Bay. En í síðari hálfleik náði Magnús Már Lúðvíksson að jafna með marki úr vítaspyrnu. fleiri urðu mörkin ekki og 1-1 lokatölur í þessum leik.