U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla
U17 landslið karla luku þátttöku í milliriðli fyrir EM í gær með því að tapa 3-0 gegn sterku liði Portúgala. Þar með er ljóst að Ísland kemst ekki í lokakeppnina þar sem Ísland endaði í þriðjasæti í sínum riðli með 1 stig.
Í Íslenska liðinu voru tveir fulltrúar frá Val en það voru þeir Darri Sigþórsson og Sindri Scheving. Þrátt fyrir að komast ekki áfram er ljóst að framtíðin er björt og það er heiður fyrir okkur Valsara að eiga tvo fulltrúa í þessu liði og ljóst að framtíðin er björt á Hlíðarenda.