Hver er maðurinn?
Kári Spence Andrésson er 19 ára írskur landsliðsmaður sem gekk til liðs við 2. flokk Vals fyrir þetta tímabil. Írar hafa ekki verið hátt skrifaðir í handboltanum og fáir sem stunda handbolta á Írlandi. Kári hóf sjálfur að æfa handbolta 10 ára með því að skjóta í vegg þar sem búið var að útbúa mark. Síðan byrjaði hann að æfa einu sinni í viku með hóp sem var blandaður af stelpum og strákum.
Hann var valinn seinna meir í hóp af efnilegum leikmönnum á Írlandi í æfingahóp fyrir landsliðið. Fyrrum landsliðsþjálfari Íra, Toni Gerona, sem er þjáfari b liðs Barcelona sá strákinn og bauð honum að koma til æfinga til Barcelona sem hann gerði og var Kári þar á síðasta tímabili.
Móðir Kára er Írsk en faðir hans sem er Íslenskur spilaði í um 10 ár í Írsku deildinni og núna sinnir hann þjálfun hjá yngri flokkum hjá Astra sem er eitt af liðunum á Írlandi. Kári sem er fæddur og uppalinn á Írlandi hefur aldrei búið á Íslandi fyrr en nú.
Kári er mjög sterkur varnarlega, fastur fyrir og mjög duglegur. Hann er skytta og er með föst og góð skot en getur bætt sig sóknarlega séð. Í heildina er hann mjög efnilegur leikmaður sem á að geta náð langt ef hann heldur áfram að æfa vel.
Kára líst vel á þjálfarateymið hjá Val og segir að Ragnar Óskarsson sem er þjálfari hans í 2.flokki hafi hjálpað sér mikið og hann sé búinn að bæta sig sem leikmaður hjá Val. Það verður gaman að fylgjast með Kára í framtíðinni því þar er mjög mikið efni á ferðinni.