Maraþonkörfubolti Vals – 24klst

Föstudaginn 11. apríl kl 20.00 hófu strákarnir í  yngri flokkum Vals 24 klst körfuboltamaraþon til að safna áheitum fyrir yngriflokkastarfið og fyrir ferð þeirra í Red Auerbach körfuboltabúðirnar í júlí.

31 strákur tók þátt og var mikið um að vera, alls kyns leikir ( 1 á móti 1, 2 á móti 2, 3 á móti 3), skotkeppnir, NBA challenge, troðslukeppni, leikir við KR og Fjölni og opin æfing fyrir vini og fjölskyldu.

Þetta var langt en skemmtilegt verkefni og strákarnir stóðu sig vel þótt orkan hefði sveflast upp og niður. David þjálfari sagði "Ég er stoltur af strákunum sem þrátt fyrir þreytu og verki luku áskoruninni og söfnuðu áheitum fyrir ferð sína til Boston og fyrir yngriflokkastarfið í Val".