Helena lætur af störfum hjá Val

Helena Ólafsdóttir og knattspyrnufélagið Valur hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu að Helena láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Helena hefur verið þjálfari hjá Val síðan október 2012 við góðan orðstýr.

Helena vildi láta hafa eftir sér að hún óski leikmönnum Vals og félaginu öllu góðs gengis í sumar. Knattspyrnufélagið Valur þakkar sömuleiðis Helenu fyrir vel unnin störf og óskar henni einnig velfarnaðar í framtíðinni.