Óskar Bjarni ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta

Óskar Bjarni Óskarsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta. Óskar var Stefáni Arnarsyni til aðstoðar á síðustu leiktíð er Valskonur urðu bæði Íslands- og bikarmeistarar. Óskar er Valsari í húð og hár og hefur verið einstaklega sigursæll sem þjálfari og hefur mikla reynslu, bæði hjá hjá Val og með landsliðum Íslands. Einnig þjálfaði Óskar í Danmörku frá 2012 til 2013.