Billy Velo Berntsson til Vals.

Billy Velo Berntsson til Vals. 

10.7.2014 

Knattspyrnudeild Vals gekk í dag frá samning við Billy Velo Berntsson. Billy var síðast á mála hjá sænska liðinu Rosengard en hefur á sínum ferli leikið með liðum á borð við Malmö, Sundsvall og Kilmarnock. Billy leikur vanalega í stöðu hægri bakvarðar en getur líka leyst af hólmi aðrar stöður í vörninni.

 

Billy fær leikheimild þann 15 júlí og verður því fyrst löglegur gegn KR þann 19 júlí á Vodafonevellinum.