Valur - KR Pepsídeild karla

Eins og flestum ykkar er eflaust kunnugt um að þá er gríðarlega mikilvægur leikur hjá mfk KK í knattspyrnu á morgun, 19.júlí. Ekki nóg með að leikurinn sé mikilvægur þá er andstæðingurinn KR.

Það hafa orðið breytingar á leikmannahópnum, vængmaðurinn Daði Bergsson og bakvörðurinn Billy Berntsson bætast við leikmannahópinn og svo voru þau tíðindi að berast í morgun að Tonny Mawejje er kominn með dvalarleyfi og verður löglegur í leiknumn á móti KR. Tonny hefur sannað sig í efstu deild á Íslandi og bindum við miklar vonir við hann.

Við viljum því biðja alla Valsara um að fjölmenna á leikinn á morgun (laugardag) og láta vel í okkur heyra.

Leikurinn hefst kl 16:00 og er á Vodafonevellinum!

Áfram Valur

 

valur_KR_2014.jpg