Ómar Ingi Magnússon í Val

Hinn bráðefnilegi handknattleiksmaður Ómar Ingi Magnússon hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val. Ómar kemur til Vals frá Selfossi þar sem hann er uppalinn. Ómar er örvhent skytta og er með efnilegustu leikmönnum landsins en hann er aðeins 17 ára gamall. 

Við bjóðum Ómar velkominn á Hlíðarenda.