Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson bætist í hópinn í handboltanum.
28.7 2014
Handknattleiksdeild Vals hefur gengið frá samningi við línumanninn Kára Kristján Kristjánsson, samningurinn er til eins árs. Kári hefur um árabil leikið sem atvinnumaður í bæði Þýskalandi og Danmörku auk þess sem hann hefur verið fastamaður með íslenska landsliðinu. Þegar ljóst varð að Kári hefði ákveðið að spila á Íslandi á komandi tímabili var mikill áhugi frá Val að fá Kára á Hlíðarenda. Félagið lýsir því yfir mikilli ánægju með að hafa fengið Kára í sínar raðir og bjóðum hann velkomin.