Valur - Stjarnan Pepsídeild karla í knattspyrnu

Vegna þátttöku Stjörnunnar í Evrópukeppni mun leikur Vals og Stjörnunnar í Pepsídeild karla í knattspyrnu fara fram föstudaginn 15.ágúst klukkan 18:30.

Þetta er mikilvægur leikur fyrir bæði lið og deginum ljósara að strákarnir okkar eru staðráðnir í að gera betur en gegn Fram. Það þýðir ekki að hengja haus, það verða allir að mæta á svæðið og styðja við bakið á drengjunum og sýna þeim að þeir standa ekki einir í smá mótbyr.

 

valur_stjarnan_2014.jpg