Ný dagsetning fyrir Valsmótið í golfi.

Kæru Valsmenn,

Nú liggur fyrir að Valsmótið í Golfi verður haldið miðvikudaginn 10.September á Urriðarvelli.

Vegna afleitar veðurspár varð að fresta mótinu sem halda átti föstudaginn 18. Júlí. s.l. Mjög erftitt hefur verið að finna nýja tíma vegna álags á vellinum.

Við höfum því fengið tíma fyrir mótið miðvikudaginn 10.September og verður ræst út af öllum teigum kl. 09:00 um morguninn. Því miður er ekki um annan tíma að ræða og vona ég fyrir hönd undirbúningsnefndar þetta geri ykkur ekki erfitt með að taka þátt.

Mig langar að biðja ykkur sem þennan póst fá að staðfesta þátttöku í mótinu með því að sena póst á petur@litaver.is sem allra fyrst, einnig vil ég biðja ykkur að hafa samband við þá sem voru skráðir á ykkar vegum og ekki fá þennan póst að hafa samband til að skrá þátttöku, markmiðið er að fylla í mótið og gera þetta að frábærum golfmóti.

 

Með Valskveðju,

Pétur Guðmundsson