Inter Milan á Vodafonevellinum.

21.08.2014

Það hefur ekki farið framhjá mörgum knattspyrnuáhugamönnum að stórlið Inter Milan var hér á landi að etja kappi við Stjörnumenn í forkepnni Evrópudeildarinnar. Það vildi svo til að ítalska liðinu vantaði æfingaaðstöðu á leikdegi og ákváðu þeir að smella sér á Vodafonevöllinn. Vakti þetta mikla kátínu yngri kynslóðarinnar sem fylgdist spennt með því þegar stórstjörnur liðsins þrömmuðu um ganga Vodafonehallarinnar, margir nýtu tækifærið og fengu mynd og eiginhandaráritun frá nokkrum leikmönnum liðsins.

Líka gaman að segja frá því að leikmenn og þjálfarar Inter hrósuðu aðstæðum á vellinum og sögðu hana vera til mikillar fyrirmyndar.

Látum fylgja með nokkrar myndir af æfingunni. 

 

photo 1.jpg

 

photo 4.jpg

20140820_113103.jpg

20140820_114103.jpg