Mfl. karla: Fylkir - Valur á sunnudaginn
22.8.2014
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu leikur gegn Fylki í Árbænum á sunnudaginn klukkan 18.00. Þetta er sjöundi heimaleikurinn í röð hjá Fylkismönnum en þeir báru sigurorð af Þór í síðustu umferð, 4:1.
Valur vann fyrri leik liðanna í sumar, 1:0, þar sem Mads Nielsen skoraði sigurmarkið á 50. mínútu. Okkar menn eru í 5. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Víkingi, og er ljóst að sigur á sunnudaginn hleypir lífi í baráttuna um Evrópusætið.
Valsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna í Lautina á sunnudaginn og styðja strákana til sigurs. Þeir þurfa á því að halda. Áfram Valur!