Luka Kostic inn í þjálfarateymi Vals
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsstyrk inn í þjálfarateymið en Luka Kostic hefur bæst í hópinn. Hann mun aðstoða þá Magga og Donna í síðustu 5 leikjum Pepsideildarinnar. Luka er gríðarlega reynslumikill þjálfari sem auk þess að hafa þjálfað mikið af yngri landsliðum Íslands hefur hann stýrt liðum á borð við Grindavík, Víking og KR.
Við bjóðum Luka hjartanlega velkominn á Hlíðarenda.