Mfl. karla: Æfingaleikur í kvöld
8.9.2014
Þeir sem bölva landsleikjahléinu í sand og ösku ættu að taka gleði sína á ný. Meistaraflokkur karla mun spila æfingaleik gegn Fjölnismönnum í Grafarvoginum klukkan 18.00 í dag.
Næsti leikur Vals í Pepsi-deildinni er á móti Víkingi á sunnudaginn klukkan 17.00. Leikið verður á heimavelli þeirra í Fossvoginum en með sigri í þeim leik opnast baráttan um Evrópusæti upp á gátt.